fbpx

Æfingagjöld

Hér að neðan má sjá gjöldin fyrir tímabilið sept 2022 – ágúst 2023

Smellið hér til að ganga frá æfingagjöldum

Hægt er að nýta sér Símamótsafsláttin til 5.12.2022

Flokkur Æfingagjöld Afsláttur vegna vinnu Frístundastyrkur (Gildir til áramóta) Símamótsafsláttur (Gildir til 5.12.2022) Upphæð
2.fl (elsta árið) 155.000 20.000 135.000
2.fl (f.2005-2006) 155.000 20.000 56.000 79.000
3.fl (f.2007-2008) 149.900 56.000 20.000 73.900
4.fl (f.2009-2010) 147.500 56.000 20.000 71.500
5.fl (f.2011-2012) 131.000 56.000 20.000 55.000
6.fl (f.2013-2014) 127.000 56.000 20.000 51.000
7.fl (f.2015-2016) 109.000 56.000 20.000 33.000
8.fl (f.2017) 61.000 56.000 5.000
8.fl (f.2018-2019) 29.000 29.000

Smellið hér til að ganga frá æfingagjöldum

Innifalið í iðkendagjöldum Breiðabliks er:
• Þjálfun við bestu aðstæður með vel menntuðum þjálfurum
• Fríar rútuferðir þegar keppt er á KSÍ mótum
• Markmannsæfingar
• Hlaupa- og styrktaræfingar í 11-manna bolta.

  • Ganga skal frá æfingagjöldum fyrir 5.desember 2022.
  • Hafi æfingagjöld ekki verið greidd inna tveggja vikna og barnið verið við æfingar  verður sendur greiðsluseðill á forráðamenn.
  • Ef forráðamaður vill breyta greiðslumáta eftirá leggst á aukagjald 1.500 kr
  • Veittur er 10% systkina/millideildarafsláttur
  • Iðkendur með ógreidd æfingagjöld fá ekki að keppa fyrir hönd Breiðabliks og hafi ekki verið gengið frá æfingagjöldum eftir eina ítrekun má búast við að þjálfarar vísi iðkendum af æfingum. Einnig eru þessir iðkendur ekki tryggðir á æfingum, sjá nánar á vef félagsins: https://breidablik.is/um-okkur/trygging-idkenda/
  • Greiðsla æfingagjalds er forsenda/skilyrði fyrir þátttöku á æfingum og mótum sem flokkur þess fer á.  Þjálfarar skrá mætingar á hverja æfingu.
  • Kjósi iðkandi að hætta æfingum verður úrsögn að berast með tölvupósti á netfangið innheimta@breidablik.is
  • Það er á ábyrgð forráðamanna að tilkynna úrsögn, tilkynning til þjálfara iðkendans verður ekki tekin gild.
  • Æfingagjöld eru ekki endurgreidd nema að góð og gild ástæða sé fyrir því að barnið hætti s.s. búferlaflutningur og/eða meiðsli. Hafa skal samband á innheimta@breidablik.issem afgreiðir umsóknir.
  • Ekki er heimilt að endurgreiða það sem greitt hefur verið með Frístundastyrk Kópavogsbæjar

Símamótsafsláttur

Athugið að einungis er hægt að nýta sér Símamótsafsláttinn ef gengið er frá æfingagjöldum fyrir 5.desember 2022. Ef æfingagjöld eru greidd miðað við vinnu á Símamótinu og forráðamenn taka síðan ekki vaktir á mótinu gjaldfellur strax sú upphæð sem fólst í þátttökunni, 20.000 kr.- að viðbættu 5.000 króna álagi vegna vanefnda.

2.flokkur

Iðkendur í 2 flokki geta fengið niðurgreiðslu æfingagjalda 20.000.- gegn vinnuskyldu sem dómarar á Símamóti Breiðabliks. Með því að sækja um niðurgreiðslu skuldbindur iðkandi sig til að uppfylla þá vinnuskyldu eins og félagið leggur til. Uppfylli iðkandi ekki vinnuskyldu verður hún innheimt í lok æfingatímabils að viðbættu fimmþúsund króna álagi vegna vanefnda.

Ganga þarf frá skráningu fyrir 5. desember 2022.

ATH. að hafa samband við innheimtufulltrúa ef um fjárhagserfiðleika er að ræða og finna úrlausn sem leiðir til áframhaldandi þátttöku iðkandans.

 

Sendið tölvupóst á innheimta@breidablik.is fyrir nánari upplýsingar og fyrirspurnir varðandi æfingagjöld.

FRÍSTUNDASTYRKUR KÓPAVOGSBÆJAR

Börn 5-18 ára með lögheimili í Kópavogi geta ráðstafað frístundastyrk að upphæð 56.000 kr fyrir árið 2022.
Einnig er hægt að nýta íþróttastyrk Reykjavíkur, sendið tölvupóst á innheimta@breidablik.is fyrir nánari upplýsingar.

KÓPAVOGSBÆJAR LEISURE GRANT

Children from 5-18 years old who have legal residency in Kópavogur can use a leisure grant of up to 56.000 kr for the year 2022. You can also use the Reykjavík city leisure grant, send an email to innheimta@breidablik.is for more information