Skráning er hafin fyrir veturinn 2024-25, smelltu hér!
Hópur | Aldursviðmið | Tímabil | Gjöld | Fjöldi |
A+ | 14 ára og eldri | 06.08.2024 – 30.06.2025 | 231.000 | 20 |
A | 11-14 ára | 13.08.2024 – 30.06.2025 | 191.000 | 20 |
B | 9-13 ára | 26.08.2024 – 01.06.2025 | 173.000 | 20 |
C | 7-11 ára | 02.09.2024 – 01.06.2025 | 123.000 | 20 |
D | 6-8 ára | 02.09.2024 – 30.05.2025 | 98.000 | 12 |
E | 5-7 ára | 02.09.2024 – 30.05.2025 | 98.000 | 12 |
Hópur | Hópalýsing |
A+ | Unglinga- og afrekshópur. Alltaf næg verkefni, fjölmörg sundmót, æfingabúðir og annað skemmtilegt. |
A | Tækni fínpússuð, byrjað á þolæfingum og aðrar æfingar kynntar. Fjölmörg mót í boði og flestir stefna á að ná lágmörkum fyrir Aldursflokkameistaramót Íslands sem er haldið á hverju ári. |
B | Færni: Tækni og aukið sundþol. Stungur og snúningar ásamt fjórsundi. Iðkendur öðlast sína fyrstu keppnisreynslu utan félagsins. Leikir. |
C | Færni: Skriðsund, baksund og flugsundsfótatök. Öndun í skriðsundi, flot, köfun, hopp og stunga, straumlínuaðlögun og rennsli frá bakka. Tækniæfingar og leikir. |
D | Færni: Skriðsund, baksund, bringusund og flugsundsfótatök. Öndun í skriðsundi, spyrna frá bakka og renna, hoppa af bakka (stunga). Flot á maga og baki. Áfram áhersla á nám í gegnum leik. |
E | Færni: Skriðsund, baksund og straumlínulögun, spyrna frá bakka og renna, hoppa af bakka (stunga), fara í kaf og sækja hluti, flot á maga og baki. Áhersla á nám í gegnum leik. |
Athugið að upphæðin sem birtist er fyrir allt tímabilið einnig þarf að hafa í huga sé barn skráð í B, C, D hóp þá þarf að passa að velja viðeigandi sundlaug í greiðslukerfinu. Hafið samband við Sund@breidablik.is ef iðkandi byrjaði um áramótin á æfingatímabilinu.
Innifalið í æfingagjöldum
- Þjálfun við bestu aðstæður
- Menntaðir þjálfarar
- Þjónustugjöld til SSÍ
Mótagjöld:
Mótgjald verður rukkað fyrir hvert mót sem iðkandi keppir á með félaginu. Gjaldið fyrir félagsmót er 3.600 kr. og gjald fyrir SSÍ mót 5.000 kr.
Greiðslufyrirkomulag:
Mögulegt er að greiða æfingagjaldið með eftirfarandi hætti:
1. Með greiðslukortasamningi (VISA/EURO/DEBET). Æfingagjaldið skiptist jafnt allt að 6 mánuði.
2. Með greiðsluseðli (pappírslaust). Æfingagjaldið skiptist jafnt allt að 6 mánuði.
FRÍSTUNDASTYRKUR KÓPAVOGSBÆJAR
Börn 5-18 ára með lögheimili í Kópavogi geta ráðstafað frístundastyrk að upphæð 59.000 kr fyrir árið 2024.
Einnig er hægt að nýta íþróttastyrk Reykjavíkur, sendið tölvupóst á innheimta@breidablik.is fyrir nánari upplýsingar.
KÓPAVOGSBÆJAR LEISURE GRANT
Children from 5-18 years old who have legal residency in Kópavogur can use a leisure grant of up to 59.000 kr for the year 2024. You can also use the Reykjavík city leisure grant, send an email to innheimta@breidablik.is for more information
Innifalið í iðkendagjöldum Breiðabliks er:
• Þjálfun við bestu aðstæður með vel menntuðum þjálfurum
- Hafi æfingagjöld ekki verið greidd inna tveggja vikna og barnið verið við æfingar verður sendur greiðsluseðill á forráðamenn.
- Ef forráðamaður vill breyta greiðslumáta eftirá leggst á aukagjald 1.500 kr
- Veittur er 5% systkina/millideildarafsláttur
- Iðkendur með ógreidd æfingagjöld fá ekki að keppa fyrir hönd Breiðabliks og hafi ekki verið gengið frá æfingagjöldum eftir eina ítrekun má búast við að þjálfarar vísi iðkendum af æfingum. Einnig eru þessir iðkendur ekki tryggðir á æfingum, sjá nánar á vef félagsins: https://breidablik.is/um-okkur/trygging-idkenda/
- Greiðsla æfingagjalds er forsenda/skilyrði fyrir þátttöku á æfingum og mótum sem flokkur þess fer á. Þjálfarar skrá mætingar á hverja æfingu.
- Kjósi iðkandi að hætta æfingum verður úrsögn að berast með tölvupósti á netfangið innheimta@breidablik.is
- Það er á ábyrgð forráðamanna að tilkynna úrsögn, tilkynning til þjálfara iðkendans verður ekki tekin gild.
- Æfingagjöld eru ekki endurgreidd nema að góð og gild ástæða sé fyrir því að barnið hætti s.s. búferlaflutningur og/eða meiðsli. Hafa skal samband á innheimta@breidablik.is sem afgreiðir umsóknir.
- Ekki er heimilt að endurgreiða það sem greitt hefur verið með Frístundastyrk Kópavogsbæjar
- Æfingagjöld miðast við staðgreiðslu, þ.e. að þau séu greidd í einni greiðslu. Ef æfingagjöldum er dreift þá bætist við 3% kostnaður vegna dreifingarinnar.