SUNDSKÓLI BREIÐABLIKS FYRIR 3-7 ÁRA
Skráning er hafin fyrir haustönn 2024!
Smellið hér til að skrá iðkanda í sundskólann
Boðið er upp á 8 vikna námskeið á haustönn bæði í Kópavogslaug og Salalaug
Tímabil:
- 2. september til 24. október
- 28. október til 19. desember
Verð:
- 1 sinni í viku: 13.000 kr.
- 2 sinnum í viku: 25.000 kr.
Upplýsingar um námskeiðið:
- Boðið er upp 5 mismunandi getustig í lauginni. Allt frá byrjendanámskeið með foreldum ofaní laug, upp í að kenna grunnstig sundaðferðanna.
- Hægt er að panta bæði 1 æfingu í viku eða 2 æfingar í viku.
- Tvö til þrjú stig eru kend á sama tíma í lauginni.
- Passa þarf að barnið nái í botninn í lauginni á stigi 1. til 4.
- Kópavogslaug
- Salalaug
- Börn færast upp um hóp þegar öll tækniatriði hafa verið náð á fyrra stigi.
- Frekari upplýsingar um stigin er neðar á síðunni
Æfingatímar sundskóla
Kópavogslaug (börn fædd 2020-2017) (hámarksfjöldi 5-8 í hóp)
Hópur 1 (1. og 2. stig) 1 sinni í viku
- Mánudagar: 16:00-16:30
Hópur 2 (1. og 2. stig) 1 sinni í viku
- Miðvikudagar: 16:00-16:30
Hópur 3 (2. og 3. stig) 1 sinni í viku
- Mánudagar: 16:40-17:10
Hópur 4 (2. og 3. stig) 1 sinni í viku
- Miðvikudagar: 16:40-17:10
Hópur 5 (3. og 4. stig) 2 sinnum í viku
- Mánudagar: 17:20-17:50
- Miðvikudagar: 17:20-17:50
Salalaug (börn fædd 2022-2017) (hámarksfjöldi 6-8 í hóp)
Hópur 1 (0. til 2. stig) 1 sinni í viku
- Þriðjudagar: 16:00-16:30
Hópur 2 (0. til 2. stig) 1 sinni í viku
- Fimmtudagar: 16:00-16:30
Hópur 3 (0. til 2. stig) 1 sinni í viku
- Þriðjudagar: 16:40-17:10
Hópur 4 (0. til 2. stig) 1 sinni í viku
- Fimmtudagar: 16:40-17:10
Hópur 5 (2. til 4. stig) 2 sinnum í viku
- Þriðjudagar: 17:20-17:50
- Fimmtudagar: 17:20-17:50
Upplýsingar um hvert stig
Stig 0. (börn fædd 2021-2022) foreldrar með ofan í laug
Lykiláhersla: Vatnsöryggi, fara með andlit í kaf, læra að fljóta með aðstoð á kvið og baki og hoppa af bakka.
Uppsetning: Grunnæfingar með foreldra ofan í laug.
Stig 1. (börn fædd 2017-2021)
Lykiláhersla: Vatnsöryggi, fara með andlit í kaf, læra að fljóta án aðstoðar á kvið og baki, sparka á bakka og hoppa af bakka.
Uppsetning: Grunnæfingar og leikir.
Stig 2. (börn fædd 2017-2021)
Lykiláhersla: Spark/Skriðsundfætur og líkamsstaða á kvið og baki, Skriðsund og Baksund með núðlur.
Uppsetning: Vatnöryggis æfingar og leikir.
Stig 3. (börn fædd 2017-2020)
Lykiláhersla: Að læra að anda í skriðsundi, líkamsstaða og fótatök í baksundi.
Uppsetning: Vatnsöryggi æfingar, tækni æfingar og leikir.
Stig 4 (börn fædd 2017-2020)
Lykiláhersla: Handartak í jafnvægi með réttri öndun í skriðsundi, líkamsstaða og fótatök í baksundi og kynning á fótataki í bringusundi
Uppsetning: Vatnsöryggi æfingar, tækni æfingar og leikir.
Ábendingar til foreldra: Góður undirbúningur barnanna stuðlar að hámarks árangri og ánægju af námskeiðunum. Þar gegna foreldrar veigamiklu hlutverki. Við viljum því benda á eftirfarandi að æskilegt að fara með barn í sund 2 – 3 sinnum fyrir námskeið til þess að kynna þeim aðstæður, áður en námskeið hefst. Allir foreldar eru velkonir að horfa á kennsluna af bakkanum en foreldrar fara ekki ofaní með börnunum. Ekki er ætlast til að börnin fari á salernið þegar að kennsla stendur yfir í 30 mín. Setjið börnin á salernið áður en lau koma í laugina. Kennarar senda börnin ekki ein inn í klefa á meðan kennsla er í gangi. Við sækjum hópinn í andyri laugarinna og forráðamenn fylgja börnum sínum í gegnum klefann og taka á móti þeim þegar að tíminn klárast. Þegar foreldrar fylgja börnum sínum í gegnum klefan, þarf að kenna þeim að slökkva og kveikja á sturtunni, nota sápu, hvernig á að þurka sér á handklæði og ekki gleymist að taka sundföt og sundglerauau inn að sturtu og heim. Börnin þurfa að læra/geta ratað sjálf úr sturtunum að innisundlauginni. (þetta á aðalega við um yngstu börnin). Minnum á að öll börn sem koma á sundnámskeið hjá sunddeild Breiðabliks eiga að vera með sundgleraugu og ef barnið er með sítt hár er æskilegt að vera með teygju eða sundhettu. Stúlkur eiga að vera í sundbol og strákar í sundskýlu, ekki stuttbuxum, þær verða þungar í vatninu og á þá barnið mun erfiðara með að gera æfingar og hreyfinar í vatninu. Ef foreldri/forráðamenn ætla í sund á meðan barnið er í tíma þarf að greiða almennt gjald laugarinnar.
Niðurgreiðsla æfingagjalda / námskeiðsgjalda
Kópavogsbær veitir foreldrum/forráðamönnum barna á aldrinum 5-18 ára frístundastyki vegna þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Starfið þarf að fara fram undir leiðsögn hæfra leiðbeinenda. Meginskilyrði styrkjanna er að starfsemin sé á forsendum uppeldislegra gilda og forvarna og nái yfir 10 vikur samfellt hið minnsta.