fbpx

Þjálfarar veturinn 2024-2025

Hópur Sundlaug Þjálfarar Netfang
A+ (Afrekshópur) Kópavogslaug Hilmar Smári Jónsson, Peter Garajszky og Riccardo Masiero sund@breidablik.is
A (Gullhópur) Kópavogslaug Hilmar Smári Jónsson, Peter Garajszky og Riccardo Masiero sund@breidablik.is
B (Silfurhópur) Kópavogslaug Guðmundur Halldórsson gudmundur.halldors04@gmail.com
C (Bronshópur) Kópavogslaug Guðmundur Halldórsson gudmundur.halldors04@gmail.com
D (Höfrungar) Kópavogslaug Júlía Líf Gunnsteinsdóttir julialif2004@gmail.com
E (Selir) Kópavogslaug Júlía Líf Gunnsteinsdóttir julialif2004@gmail.com
Námskeið Kópavogslaug Júlía Líf Gunnsteinsdóttir, Ásdís Gunnarsdóttir, julialif2004@gmail.com
B (Silfurhópur) Salalaug Jón Ingi Halldórsson joningi.halldors@gmail.com
C (Bronshópur) Salalaug Jón Ingi Halldórsson joningi.halldors@gmail.com
D (Höfrungar) Salalaug Jón Ingi Halldórsson joningi.halldors@gmail.com
Námskeið Salalaug Anna María Vilhjálmsdóttir, Halldóra Björt Ingimundardóttir, Margrét Anna Lapas, Heppin@hotmail.com

Hópalýsingar

A+-hópur (Afrekshópur) 14 og eldri

Unglinga- og afrekshópur. Alltaf næg verkefni, fjölmörg sundmót, æfingabúðir og annað skemmtilegt.

Í afrekshópi eru meðal annarra nokkrir krakkar sem eru í landsliðshópum. Við stefnum alltaf á að eignast fleiri fulltrúa í landsliðum.

Þjálfarar: Hilmar Smári Jónsson, Peter Garajszki og Riccardo Masiero

Laugar: Kópavogslaug

A-hópur (Gullhópur) 11 -14 ára

Tækni fínpússuð, byrjað á þolæfingum og aðrar æfingar kynntar. Fjölmörg mót í boði og flestir stefna

á að ná lágmörkum fyrir Aldursflokkameistaramót Íslands sem er haldið á hverju ári.

Þjálfarar: Hilmar Smári Jónsson, Peter Garajszki og Riccardo Masiero

Laugar: Kópavogslaug

B-hópur (Silfurhópur) 9 – 11 ára (Kópavogslaug og Salalaug)

Færni: Tækni og aukið sundþol. Stungur og snúningar ásamt fjórsundi. Iðkendur öðlast sína fyrstu keppnisreynslu utan félagsins. Leikir.

Þjálfarar: Jón Ingi Halldórsson og Guðmundur Halldórsson

Laugar: Kópavogslaug og Salalaug

C-Hópur (Bronshópur) 8-10 ára

Færni: Skriðsund, baksund og flugsundsfótatök. Öndun í skriðsundi, flot, köfun, hopp og stunga, straumlínuaðlögun og rennsli frá bakka. Tækniæfingar og leikir.

Þjálfarar: Jón Ingi Halldórsson og Guðmundur Halldórsson

Laugar: Kópavogslaug og Salalaug

D-hópur (Höfrungar) 6-8 ára

Færni: Straumlínulögun, spyrna frá bakka og renna, hoppa af bakka (stunga), fara í kaf og sækja hluti, flot á maga og baki, skriðsunds- og baksundsfótatök.  Áfram áhersla á nám í gegnum leik.

Þjálfarar: Jón Ingi Halldórsson og Júlía Líf Gunnsteinsdóttir

Laugar: Kópavogslaug og Salalaug

E-hópur (Selir) 6-7 ára

Hópur fyrir yngstu börnin. Áhersla er lögð á vatnsaðlögun, að börnunum líði vel í vatninu og læri að bjarga sér.

Færni: Straumlína, spyrna frá bakka og renna, nota kork, flot, fara í kaf og blása frá sér, öndun, hoppa út í laug. Skriðsundsfótatök á maga og baki o.m.fl. Námið fer að mestu fram í leik.

Þjálfari: Júlía Líf Gunnsteinsdóttir

Laugar: Kópavogslaug