fbpx

Æfingagjöld

Búið er að opna fyrir skráningu veturinn 2024-2025!

Smelltu hér til að ganga frá æfingagjöldum fyrir veturinn 24/25

Verðin eru eftirfarandi:

Taekwondo allt árið / 2.sept 2024 – 11.maí 2025  70.000

Taekwondo haust / 2.sept 2024 – 16.des 2024  40.000

Taekwondo vor / 6.jan 2025 – 11.maí 2025  40.000

Allir velkomnir að mæta á æfingu og prófa, hlökkum til að sjá ykkur!

Innifalið í iðkendagjöldum Breiðabliks er:
• Þjálfun við bestu aðstæður með vel menntuðum þjálfurum

  • Hafi æfingagjöld ekki verið greidd inna tveggja vikna og barnið verið við æfingar  verður sendur greiðsluseðill á forráðamenn.
  • Ef forráðamaður vill breyta greiðslumáta eftirá leggst á aukagjald 1.500 kr
  • Veittur er 5% systkina/millideildarafsláttur
  • Iðkendur með ógreidd æfingagjöld fá ekki að keppa fyrir hönd Breiðabliks og hafi ekki verið gengið frá æfingagjöldum eftir eina ítrekun má búast við að þjálfarar vísi iðkendum af æfingum. Einnig eru þessir iðkendur ekki tryggðir á æfingum, sjá nánar á vef félagsins: https://breidablik.is/um-okkur/trygging-idkenda/
  • Greiðsla æfingagjalds er forsenda/skilyrði fyrir þátttöku á æfingum og mótum sem flokkur þess fer á.  Þjálfarar skrá mætingar á hverja æfingu.
  • Kjósi iðkandi að hætta æfingum verður úrsögn að berast með tölvupósti á netfangið innheimta@breidablik.is
  • Það er á ábyrgð forráðamanna að tilkynna úrsögn, tilkynning til þjálfara iðkendans verður ekki tekin gild.
  • Æfingagjöld eru ekki endurgreidd nema að góð og gild ástæða sé fyrir því að barnið hætti s.s. búferlaflutningur og/eða meiðsli. Hafa skal samband á innheimta@breidablik.issem afgreiðir umsóknir.
  • Ekki er heimilt að endurgreiða það sem greitt hefur verið með Frístundastyrk Kópavogsbæjar
  • Æfingagjöld miðast við staðgreiðslu, þ.e. að þau séu greidd í einni greiðslu. Ef æfingagjöldum er dreift þá bætist við 3% kostnaður vegna dreifingarinnar.

FRÍSTUNDASTYRKUR KÓPAVOGSBÆJAR

Börn 5-18 ára með lögheimili í Kópavogi geta ráðstafað frístundastyrk að upphæð 59.000 kr fyrir árið 2024.
Einnig er hægt að nýta íþróttastyrk Reykjavíkur, sendið tölvupóst á innheimta@breidablik.is fyrir nánari upplýsingar.

KÓPAVOGSBÆJAR LEISURE GRANT

Children from 5-18 years old who have legal residency in Kópavogur can use a leisure grant of up to 59.000 kr for the year 2024. You can also use the Reykjavík city leisure grant, send an email to innheimta@breidablik.is for more information