fbpx

Æfingagjöld

Smelltu hér til að skrá þig og veldu Þríþraut!


Æfingagjöld

Æfingatímabil þríþrautarinnar er til 30. september 2025.

Áhugasamir mega prófa frítt sund- og hlaupaæfingar fyrstu tvær vikur janúar 2025.

Nánari upplýsingar um starfsemina er hér: Kynningarfundur og kynning frá Ólympíuförum | Facebook

Hægt er að skipta greiðslum á greiðslukort eða greiðsluseðil í heimabanka eða með Síminn Pay.

Æfingagjöld 1. jan.-30. sep. 2025 Verð kr
Þríþraut 1 – Stóri áramótapakkinn:  Þjálfun, árskort  í Kópavogs- og Salalaug, aðgangur að Ásvallalaug og FH-höll á æfingatímum 77.000
Þríþraut 2 – Litli áramótapakkinn: Þjálfun, aðgangur að Kópavogs- og Ásvallalaugum og FH-höll á æfingatímum. 57.000
Þríþraut 3 – Fjarþjálfun: Vikuleg æfingaáætlun og samhlaup á laugardögum. 22.000
Félagsgjald: Er innifalið í öðrum leiðum. 1 útiæfing/viku innifalin. 7.500

Í æfingapökkum 1-3 er innifalið:

  • Æfingaáætlun yfirþjálfara á Training Peaks.
  • Aðgangur að lokaðri Fésbókarsíðu deildarinnar.
  • Aðgangur að æfingum á Dynamic Triathlete.
  • Afsláttur hjá ýmsum samstarfsaðilum.

25 ára og yngri og 67 ára og eldri fá 50% afslátt af Þríþraut 1 og Þríþraut 2. Annar maki fær 20% afslátt af sömu áskriftarleiðum. Mikilvægt er að hafa FYRST samband við innheimta@breidablik.is sem sendir þér greiðslutengil með afslættinum.

Æfingataflan er hér. Þríþrautardeildin er í samstarfi við aðrar deildir og félög varðandi þjálfun og aðstöðu m.a. hjóla-, hlaupa- og sunddeildir Breiðabliks, þríþrautardeild Sundfélags Hafnarfjarðar, skokkhóp Hauka og FH í Hafnarfirði.

Fyrir nánari upplýsingar, sendið póst á thrithraut@breidablik.is

Innifalið í iðkendagjöldum Breiðabliks er:
• Þjálfun við bestu aðstæður með vel menntuðum þjálfurum

  • Hafi æfingagjöld ekki verið greidd inna tveggja vikna og barnið verið við æfingar  verður sendur greiðsluseðill á forráðamenn.
  • Ef forráðamaður vill breyta greiðslumáta eftirá leggst á aukagjald 1.500 kr
  • Veittur er 5% systkina/millideildarafsláttur
  • Iðkendur með ógreidd æfingagjöld fá ekki að keppa fyrir hönd Breiðabliks og hafi ekki verið gengið frá æfingagjöldum eftir eina ítrekun má búast við að þjálfarar vísi iðkendum af æfingum. Einnig eru þessir iðkendur ekki tryggðir á æfingum, sjá nánar á vef félagsins: https://breidablik.is/um-okkur/trygging-idkenda/
  • Greiðsla æfingagjalds er forsenda/skilyrði fyrir þátttöku á æfingum og mótum sem flokkur þess fer á.  Þjálfarar skrá mætingar á hverja æfingu.
  • Kjósi iðkandi að hætta æfingum verður úrsögn að berast með tölvupósti á netfangið innheimta@breidablik.is
  • Það er á ábyrgð forráðamanna að tilkynna úrsögn, tilkynning til þjálfara iðkendans verður ekki tekin gild.
  • Æfingagjöld eru ekki endurgreidd nema að góð og gild ástæða sé fyrir því að barnið hætti s.s. búferlaflutningur og/eða meiðsli. Hafa skal samband á innheimta@breidablik.issem afgreiðir umsóknir.
  • Ekki er heimilt að endurgreiða það sem greitt hefur verið með Frístundastyrk Kópavogsbæjar
  • Æfingagjöld miðast við staðgreiðslu, þ.e. að þau séu greidd í einni greiðslu. Ef æfingagjöldum er dreift þá bætist við 3% kostnaður vegna dreifingarinnar.